|
Heimsóknir
Í dag: 7 Alls: 38647
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 30 júlí
Hver er þessi Valdi Kaldi
Valdi er fæddur 3. apríl 1982 og er þar að leiðani hrútur. það eina sem talar um og hugsar um eru hestar hestar og svo konunar sína hana Silju. uppáhalds hesturinn hans er án efa hún Artemis hún er fædd 2001 og er jörp 1st verðlauna meri með m.a 9 fyrir tölt, vilja og geðslag. Valdi er að læra eitthvað rosa rosa heitir eitthvað véladót... já véltæknifræði í Háskólanum í Reykjavík, hann var í sigurliðinu sem vann hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinga háskóla íslands 2008
|
30.07.2008 08:56:55 / valdimar
Mikið búið að gerast síðan maður nennti að skrifa síðast af einhverju viti hér á síðuna, merkilegasta er auðvitað að Silja mín er komin inn í dýralækninn í Køben. Við erum við búin að vera að græja það alveg á fullu, hún flytur núna seinnipartinn í ágúst út og vorum við bara að fá það staðfest í gær að hún fengi íbúð á college svæði... það munar alveg svakalega um það því það kostar alveg aðra löppina á mánuði að fara að leigja á almennum markaði í downtown Køben. Þetta er alveg rosalega flott og gróið svæði og er slóðin á það hér: http://www.kollegierneskontor.dk/kkik.htm. Ég klára mitt nám hérna heima en fer svo til Køben um leið og ég klára, við vorum svo að skoða íbúðir sem við gætum verið í þegar ég kæmi út og duttum við um lítinn bóndabæ 30km frá miðborginni og sjitt hvað ég væri til í það kostaði ekkert brjálæðislega og ein kvöðin var að maður þurfti að gefa rollum fyrir eigandann 3 í viku 10mín í senn... en það er ekkert mál. Og það besta er að á staðnum er hesthús og það er rétt hægt að ýmunda sér hvað það væri spennandi að vera með hesta með sér úti. Talandi um hesta datt um eina mynd af nýjasta leynivopninu...Sólarorkunni minni undan Kraft frá Efri-Þverá

-Valdi-
»
21.07.2008 12:39:21 / valdimar
 Það hafa eflaust margir heyrt eða
lesið um þessi fræði áður, en þetta er besta útskýringinn og kemur hún frá hinum alvísa Cliff Calvin í Staupasteini.
Cliff Calvin var að útskýra Buffala-kenninguna fyrir vini sínum Norm og það gekk svona fyrir sig:
“Sjáðu nú til Norm, þetta virkar svona….
Buffalahjörð getur aðeins farið jafn hratt og hægasti buffalinn í hjörðinni.Og þegar veitt er úr hjörðinni eru það hinir hægustu og veikustu aftast í hjörðinni sem eru drepnir fyrst.
Þetta náttúrulega val er mjög gott
fyrir hjörðina í heild sinni því að með reglulegum drápum á veikustu og
hægustu einstaklingunum batnar heilsufar hjarðarinnar og hraði hennar.
Á sama hátt má segja að mannsheilinn geti aðeins unnið eins hratt og hægustu heilasellurnar leyfa.
Eins og við öll vitum þá drepur alkohól heilasellur en eðlilega drepur það hægustu og veikustu sellurnar fyrst.
Á þennan hátt veldur regluleg inntaka
áfengis því að veikari sellurnar drepast og þar með því að heilinn
verður hraðvirkari og skilvirkari.
Þetta er ástæðan fyrir því að maður verður svona klár eftir nokkra bjóra!!!”
»
17.07.2008 17:07:13 / valdimar
 Lítill strákur kom morgun einn niður í morgunverð og spurði ömmu sína: “Hvar er mamma og pabbi?
Amman svaraði: “Þau eru ekki komin á fætur.”
Strákurinn fór að flissa og hélt síðan áfram að borða morgunmatinn.
Hann fór síðan út að leika sér.
Þegar hann kom í hádegismat spurði hann ömmu sína aftur: “Hvar er mamma og pabbi?”
Amman svaraði: “Þau eru enn ekki komin á fætur.”
Strákurinn fór aftur að flissa og hélt síðan áfram að borða hádegismatinn.
Hann fór síðan út að leika sér.
Í kvöldmatnum spurði hann ömmu sína enn og aftur: “Hvar er mamma og pabbi?”
Og amma hans svaraði sem fyrr: “Þau eru enn ekki komin á fætur.”
Strákurinn fór nú að skellihlæja og amma hans spurði hann: “Í hvert
skipti sem ég segi þér að þau séu ekki komin á fætur, ferðu að hlæja!
Hvað er svona fyndið?”
Strákurinn svaraði: “í gærkvöldi kom pabbi inn til mín og spurði mig um Vaselínið og ég rétti honum túbu með superlími.”
»
11.07.2008 11:11:05 / valdimar

Eins og venjulega fór Eddi snemma í háttinn, kyssti konuna góða nótt og steinsofnaði. Seinna um nóttina vaknar hann og sér gamlan mann inni í svefnherberginu, klæddan í hvítan kufl.
“Hvað í andskotanum ertu að gera í svefnherberginu mínu ?” segir Eddi reiður. “Þetta er ekki svefnherbergið þitt,” segir maðurinn, “þú ert kominn til himna og ég er Lykla-Pétur.” “HVAÐ? Ertu að segja að ég sé dauður ? Ég vil ekki deyja… ég er allt of ungur og á eftir að gera svo margt,” segir Eddi. ” Ef ég er dauður þá vil ég að þú sendir mig til baka á stundinni!” “Það er nú ekki svo einfalt,” Svarar Pétur. Þú getur aðeins snúið til baka sem hestur eða hæna. Eða haldið áfram að vera dauður auðvitað. Eddi hugsaði þetta í nokkrar mínútur og komst að því að það er örugglega ekkert auðvelt líf að vera hestur, úti að hlaupa allan daginn með einhvern á bakinu, svo af tvennu illu þá væri líklegra betra að snúa aftur sem hæna. Það væri ábyggilega letilíf. “Ég vil snúa aftur sem hæna…” Samstundis var Eddi kominn í hænsnakofa með fallegar fjaðrir og allar græjur. En almáttugur hvað honum var illt í afturendanum. Það var eins og hann væri að springa! Þá kemur haninn…. “Hæ þú hlýtur að vera ný hérna. Hvernig hefurðu það? “Allt í lagi býst ég við” Svarar Eddi en mér finnst eins og rassinn á mér sé að springa! “Þú ert bara að fara að verpa. Hefurðu aldrei verpt áður? Nei hvernig geri ég það? “Gaggaðu tvisvar og þrýstu svo af öllu afli” Svarar haninn. Og Eddi gaggar tvisvar og rembist svo eins og hann eigi lífið að leysa. Skömmu síðar liggur hans fyrsta egg á gólfinu. “Vá segir Eddi þetta er meiriháttar svo gaggar hann aftur tvisvar og byrjaði að rembast og eitt egg í viðbót liggur á gólfinu. Þegar hann gaggar í þriðja sinn heyrir hann konuna sína öskra: “Vaknaðu Eddi, í öllum bænum. Þú ert búin að skíta út um allt rúm..!!!
»
08.06.2008 22:18:03 / valdimar
Hér er Blesi minn í góðu stuði, tókum nokkrar myndir af honum...!!! 
»
21.05.2008 15:01:23 / valdimar
Loksins komst maður í þessa langþráðu ferð til Boston, maður hefur náttúrulega aldrei komið til US and A þannig að maður var spenntur að sjá þessa þvílíku dýrð sem allir tala um sem komið hafa hingað. Við Stefán mættum mjög tímalega á flugvöllinn og vorum búnir að tala okkur saman um að gera allt mjög örugglega varðandi tímasetningar og útfyllingu á útlendingar pappírunum, þannig að við þefuðum upp barinn á flugvellinum og létum bera í okkur drykki á meðan við fylltum út pappíranna. Svo heyrðum við eitthvað fólk vera kallað örugglega 5 sinnum upp og beðið um að koma strax út í flugvél því það væri bara verið að bíða eftir því til að taka á loft, við vorum sammála um hvaða djöfulsins bjánar það væru sem létu heila flugvél bíða eftir sér með 200 ógeðslega pirraða farþega. Þannig að við héldum bara áfram að hafa það gott á barnum og steingleymdum okkur gersamlega og vissum ekki fyrr en klukkan var 5mín yfir flugtak og rukum af stað og heyrði þá loksins almennilega hvað var verið að segja í hátalara kerfið, heyrði bara eitthvað muldur, en það var víst búið að kalla okkur upp í hálftíma og gellan í hátalaranum orðinn slétt pirruð. Mér hefur aldrei langað eins mikið að setja á mig hauspoka og þegar ég labbaði inn í flugvélina allir bendandi á klukkuna og spyrjandi hvort maður kunni ekki á klukku.... ekki töff. Eftir að við lentum þurfti maður að fara í gegnum þessa geðveikislegu útlendinga tékk hjá þeim, og þegar ég sagði að ég væri „mechanic engineering” og í námsferð til að kynnast MIT kom einhver sposkur svipur á liðið og héldu áfram að spyrja og eftir að þeir náðu upp úr mér að ég væri sérstaklega að læra um orku og hvernig maður notar hana urðu þeir ennþá tortryggari og spurðu hvort ég vissi eitthvað um kjarnorku og eitthvað, en áhváðu eftir að ég náði að sannfæra þá um að ég væri bara vitleysingur og vissi ekki neitt og kynni ekki neitt áhváður þeir að hleypa mér í gegn. Var að pæla hvort maður hefði ekki átt að hræra aðeins upp í þeim og spyrja þegar maður var að lappa í burtu „So... Where can I find a nuclear power plant”. En það hefði þýtt að maður hefði þurft að dúsa í svona 50 ár í fangelsi, ágætt að maður sleppti því. Það er búið að vera ágætt að vera hérna tókum bílaleigu bil daginn eftir að við komum og fengum að vita það að öll GPS tækin þeirra væru í útleigu, ekki töff, komst að því á einum degi að það myndi ekki ganga upp að keyra um Bostin, í öllum flækjunum og slaufunum með því að reyna að lesa af korti. Þannig að við tveir lögðum það saman að það myndi borga sig að kaupa GPS og hætta að keyra í ruglinu vera 10mín á leiðinni í staðinn fyrir 3klst. og hvað þetta tæki er mikil snilld er ólísalegt stimpluðum inn t.d baby r us (Stebbi og frú eiga von á tvíburum) og það kemur með allar þannig búðir í nágreninu og hversu langt er í þær og hversu lengi ég er þannig á meðalhraða. Við erum búnir að versla talsvert hérna, svona eins og tíminn leyfir, Stefán aðallega þrætt barna verslanirnar. En við fórum í þvílíka dótabúð, hún heirir Bass Pro og getur maður fengið allt sem tengist veiði og útivist, stærðin á þessari búð.... þetta var eins og smáralindin bara veiðibót og maður getur fengið allt frá öngli og upp í stóra spítt báta og verðið á þessu (allavega miðað við heima) er algert djók, ég keypti mér camo vöðlur sem kosta heima um 18.000 fékk þær á 7000 þarna, Stefán keypti camó úlpu og smekkbuxur kostgar heima 60.000 fékk það á 27.000 þannig að maður missti sig gersamleg og ef maður hefði verið með meiri pening og stærri tösku þá hefði ég alveg getað verslað fyrir allan peninginn. Og svo voru ótrúlega mikið að uppstoppuðum dýrim þarna inni, fullt af björnum fuglum og steypireiður í fullri stærð magnað helvíti. Svo er það auðvitað MIT, sem er auðvitað aðalástæðan sem við erum hérna... óóó god all mighty hvað þetta er geðveikt allt aðstaðan sem nemarnir sem eru í roobot tækninni eru með er algerlega sjúkleg, þeir erum bara með kredit kort frá skólanum og gerir bara það sem þeim dettur í hug að sé skemmtilegt að gera. Og það sem þetta fólk er að gera... manni leið eiginlega illa að sjá hvað þetta lið var gáfað, margt að því sem manni var sagt hafði maður aldrei áður heyrt um, og að manni hafi einhvertímann dottið í hug að það væri séns fyrir mig að komast inn í þennan skóla.... dííí ég finn bara hvernig asnaeyrun byrja að vaxa á mér. Roobotinn sem við smíðuðum til að taka þátt í hönnunarkeppninni gersamleg hverfur í samanburði við það sem er verið að gera þarna. Margt að því sem við sáum er bara eitthvað sem maður gat aldrei ímyndað sér, vélmenni sem er forritað til að sýna tilfinningar, og annar roobot, það magnaðasta, neðri partur af manni þ.e tvær lappir sem ganga sjálfar og leiðrétta sig þannig að þær geta haldið jafnvægi hlaupið um og tekið heljarstökk, forritunin á bak við það er svo gígkantísk að ég á ekki orð yfir það (held að það gandi mest út á öfugan pendúl og skriljónir aðra hluta. Hér í Boston er endalaust nætur líf alla daga og við höfum verið að ráfa um bæinn á kvöldin, kíkt á pöbba og allskonar. Við fórum á fimmtudeginum á ótrúlega magnaða sýningu sem heitir The Blue man show.... demmit hvað þeir eru góðir, krafturinn sem kemur frá þessum mönnum þegar þeir gefa allt í botn á trommunum er alveg ægilegur og það sem gerði þetta líka dálítið spennandi var að þeir drógu helling að fólki upp á svið og létu gera sig að fífli, ég var næstum því dreginn upp nema einhver gella sem sat hliðin á mér var svo æst að komast upp bjargaði mér og auðvitað náðu þeir að láta hana líta út eins og algeran vanskapning. Svo ákváðum við á sunnudagskvöldið að prófa að fara á hafnabolta leik, liðið hér í boston heitir Boston red sox og urðu meistarar í fyrra þannig að það er alveg klikkuð stemmning hér í boston þegar þeir eru að spila. Þegar við vorum komnir inn á völlinn... hólí smók hvað þetta var stórt og allt troðið af fólki öskrandi og klappandi þetta var alveg geðveik stemning. Bara eitt sem pirraði mig þar, voru einhverjir gæjar sem komu og settust hliðina á okkur (allt í góðu með það) nema upp úr engu þá ælir einn þeirra og yfir fólkið sem sat fyrir framann hann!!! núna ég hélt að nú yrði dreginn upp byssa og gaurinn skotinn á staðnum, því einn maðurinn fyrir framan fékk þvílíka gusu yfir sig af ælu!!! En það var enginn skotinn í þetta skiptið allavega, gaurarnir hlupu í burtu þegar allt ætlaði að sjóða uppúr, en stínkurinn af þessu er ekki hægt að lýsa. Það voru nokkrir hlutir sem mig tókst að pirra mig endalaust á í þessari ferð, fyrir það fyrsta er það þessi endalausi faldi kostnaður sem maður verður ekki var við en það er alltaf verið að tína af manni hvern dollarann á fætur öðrum án þess að maður verði var við það. T.d ef maður verslar buxur þá er verðið á rekkanum af strípuðum buxunum svo þegar kemur að því að borga þá á eftir að leggja á söluskattinn sem er 5-10%, á Íslandi yrði þetta aldrei liðið að auglýsa vörur í verslanir svo þegar maður fer að borga leggst vaskurinn á.... aldrei. Svo er það annar falinn kostnaður, tipps, þetta er sennilega það allra heimskulegasta kerfi sem ég hef vitað um, maður pantar sér mat á veitingarstað og ætlar að borga fyrir hann þá er „hefð“ fyrir því að gefa tipps og eitthver 15% af þeirri upphæð sem maður verslar fyrir (var allavega logið ofan í mig) bætt ofan á verðið svo þjónustupían fái sitt. Það hlýtur að vera hægt að gera vinnuna hjá þessum þjónustu fólki hvetjandi á einhvern annan hátt en að það þurfi að smjaðra fyrir manni nógu mikið þannig að maður gefi rausnarlegt tipps. Ég er allavega með ráð hækka bara verðið á matseðlinum um 15% og launin þeirra í takt við það, veist hvað þú færð og veist hvað þú borgar. Svo er það eitt annað ég komst að því að bandaríkjamenn eru eins og þeir myndu segja það hypocrites eða hræsnarar, þessi áfengislög hjá þeim eru svo út í hött að manni langar til að æla, í alvörunni. Bara svo allt líti svo vel út á yfirborðinu er alveg stranglega bannað að sjást með eitthvað ílát sem gæti innihaldið áfengi undir berum himni. Svo er það með áfeni og bíla, mér finnst það alveg það allra heimskulegasta sem ég hef á ævi minni verið vitni af, lögin þar segja að ef það er ílát með áfengum drykk, opið eða lokað, inn í farþega ríminu þá er bílstjórinn sakaður um drunk and drive (keyra undir áhrifum). Ég var eitthvað að reyna að rökræða þetta við einhverja Kana en þeir voru gersamlega frosnir í hausnum og fannst þetta alveg voða sniðugt og það mætti als ekki vera áfengi þar sem bílstjórinn gæti náð í það og óvart fengið sér sopa. Þetta kalla ég stóra bróður syndum á hæsta stigi, fyrir mér er þetta jafn heimskulegt og ef maður á byssu þá er maður morðingi. En allavega er þessi ferð búin að vera alveg frábær og maður búinn að læra mikið af þessu bæði í MIT og auðvitað líka á því að vera í öðru samfélagi. En það er eitt sem við Íslendingar eða pólitíkusarnir ættum að læra af kananum (og sennilega fleiri þjóðum) það er að leyfa hægri beygju á rauðu ljósi þegar það á við. Eitt að lokum... var í smá þunglindi yfir Artemis áður en ég fór út en Sússi dýralæknir kíkti á hana og komst að því að bakið á henni er búið að vera að angra hana mjög mikið og ekki geta beitt sér neitt út af því, þannig að núna er hún undir ströngu eftirlit Silju í heitum bökstrum og hitalömpum hjá Örnu að verða betri en nokkurn tímann. -Valdi-
»
13.05.2008 00:14:32 / valdimar
Ég ætla að minna á að það verður sýnt frá Hönnunarkeppni HÍ á þriðjudaginn 13 maí kl 20.55. Eins og allir í heiminum eiga að vita þá tókum við félagarnir þátt í keppninni og RÚúúÚSTUÐUM henni. Þannig að það er skylda fyrir alla að horfa á þetta og sjá HÍ-ingana tekna og rassselta. Ég missi reyndar af þættinum því ég verð í flugvél á leið til Boston í MIT.... já við félagarnir fengum ferð til US and A í besta skóla í heimi á verkfræði sviði þannig að ég verð bara að sjá hann í endursýningu. En allavega Hestafréttir: Artemis, eða „Misa“ eins og hún er víst kölluð, er bara í fýlu og í skíta málum eitthver helti og blabla... veit ekki hvað verður gert með hana en það kemur bara í ljós...merar tussan. En allt annar söngur er núna með hann Blesa minn (Glampa soninn) Þvílík kátína gleði og léttleiki sem svífur yfir þeim hesti, bara að hugsa um það á morgnana að maður eigi eftir að fara á bak þeim hesti seinna um daginn gerir þann dag að fullkomnum degi. Krafturinn lipurðin áræðnin og ég á ekki fleiri orð. Ég ætla að taka hann upp og set þá kannski dýrðina inn á netið. En nú þarf maður að fara að pakka. -Valdi-
»
04.03.2008 16:33:47 / valdimar
Við Silja fórum austur á Álfhóla um daginn til að hjálpa Söru frænku að örmerkja folöldin og eitt og annað. Þar á meðal var litla Sólarorkan mín undan Sóldögg og Kraft frá Efri-Þverá og hér er mynd af henni sem við tókum af henni í góðu stuði, ég held að maður þurfi ekkert að ræða þetta nánar látum myndina bara tala sýn máli!!! Hendi kannski fleiri, ekki síðri, myndum inn af henni við tækifæri... þegar ég nenni.

 Það er búið að vera allt vitlaust að gera í þessum blessaða skóla eins og alltaf en það er bara gott. Ég var búinn að vera að hugsa um hvað manni dreymdi alltaf um að gera þegar maður var lítill, ég man allavega að við strákarnir þegar við vorum pjakkar vorum við með misjafna drauma, man að Helgi ætlaði sér að komast á olempiuleika og keppa í badmintoni og annar félagi minn ætlaði að verða ógeðslega ríkur lögfræðingur eins og pabbi sinn. Ég veit alavega að minn draumur var alltaf að vera nógu klár og úrræðagóður að komast upp á svið með tæki og keppa í Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema, þetta lét maður sig dreyma um leið og maður tætti í sundur tæknilegóið og hannaði sín eigin tæki og setti samann. Og viti menn þessi draumur rættist heldur betur og gott metur en það, við fórum með bíl upp á svið í borgarleikhúsinu og tókum þátt og unnum keppnina!!! Og sjjjitttt hvað maður er búinn að vera að rifna úr stolti út í sjálfan sig og mér finnst það allt ílagi að vera örlítið montinn. Það voru líka engin smá slor verðlaun sem við fengum, rosalega flottan farald bikar og fartölvu sem kostar 360.000 út úr búð. Það er ekki allt Skólinn okkar var líka svo ánægður með okkur að það var ákveðið að fella niður skólagjöldin okkar sem eru 140.000 á kjaft...ekki slæmt. Og núna vorum við tveir sem erum ekki að borga skólagjöld að ræða við Svöfu Grönfeldt rektor HR um hvort vilyrði væri fyrir því að gera eitthvað fyrir okkur tvo. Hún var reyndar ekki með svör á reiðum höndum en ein hugmynd frá henni var að HR myndi senda okkur til Boston í bandaríkjunum og taka kúrs í (MIT) massachusetts institute of technology það er fyrir þá sem ekki vita virtasti og besti skóli í öllum heiminum sem kennir tækni- og verkfræði, það er alveg sama á hvaða ranking lista væri litið MIT væri alltaf efstur hvort sem það væri Byggingar- tölvu- rafmagns- heilbrigðis- eða vélaverkfræði.... þannig að maður er með krosslagða fingur. 
En annars er allt gott að frétta að hrossa málum, Artemis er í góðu yfirlæti hjá John á Hvoli og stefnir á góða hluti með hana í vetur og vor. Og auðvitað hann blessi minn er allur að koma til þvílíkur auðlingur og gæðingur.
»
15.01.2008 22:31:45 / valdimar
Jæja tími á að henda inn smá texta og jafnvel myndum ef maður man hvernig maður á að gera það!!!! En allavega þá er önnin búin og næsta tekin við, þetta jóla frí allt of stutt, og þó ótrúlega megi virðast þá fóru prófin bara nokkuð vel og meira að segja dúxaði kallinn nánast meira að segja í einum erfiðasta áfanganum sem by the way 80% þurftu að taka aftur, en ég var samt ekki með nema 6,5 sem er varla ásættanlegt. En hestarnir mínir Artemis og Blesi eru komin inn, dálítið síðan, en þau eru í góðu formi og er maður búinn að setja stefnuna meira að segja.... stefnan er sett á landsmót hestamanna á hellu og ekkert minna vonandi að Artemis komi með en ég ætla allavega að fara J . Ég fór í reiðtúr á henni áðan, og það er búið að snjó alveg rosalega og fjúka í skafla, svo vorum við á heimleið og hún var svo viljug að ég nánast gafst upp að reyna að fá hana til að vera á einhverju punt hægu tölti þannig að ég leyfði henni bara að vaða áfram og það á engum smá krafti... hún svoleiðis þeyttist á þvílíku yfirferðartölti í gegnum kviðháa skafla þannig að maður fékk allt framan í sig og sá ekkert þannig að hún sá bara um þetta og gaf alltaf bara meira í... klikkuð meri!!! En alla vega þá er maður ekki alveg að nenna að byrja aftur í skólanum þannig að við strákarnir í Véltæknifræðinni ákváðum að skrá okkur til leiks í hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinga háskóla Íslands (sem var alltaf sýnd í nýjasta tækni og vísindi á ruv). Það er fyrirfram ákveðinn braut sem við eigum að leysa. Núna gengur það út á það að keyra af stað taka upp egg keyra yfir 4 hindranir sem eru 1cm x 1cm og ofaní smá poll upp brekku og þar verður smá vatnsstraumur á móti, svo þarf að koma egginu ofaní körfu sem er í 1m hæð. Þetta hljómar auðvitað frekar einfalt... en málið er að bíllinn má bara vera 40cm x 40cm x 40cm og má ekki vera yfir 10kg og ekki kost meira en 20þús. og það verður að vera bara einn on/off rofi aftan á honum sem lætur allt fara af stað.  Við erum 5 í bekknum sem erum í liðinu en það verður einn í liðinu að vera í Hí þannig að við skráðum konu eins liðsfélag okkar sem er í félagsfræði í liðið hún heitir Dóra og við ákváðum því að skýra liðið Dóra og aðstoðarmennirnir. Það gæti orðið skondið að sjá félagsfræði nemann skýra út fyrir áhorfendum hvernig bíllinn virkar og allt það og flott ef félagsfræði nemi myndi vinna verkfr. Hönnunarkeppnina.

Frekar mikið drasl hjá okkur enda ekki mikið verð að spá í öðru en að vinna þessa keppni 
búið að setja teikningarnar upp á vegg 
Plebbinn 
Milli nóri eins og hann er kallaður. 
Stjánarnir.... 
Og auðvitað alskonar íhlutir 
Kallinn með tækið en ekki er hættandi að sýna vegna iðnaðarnjósna annara keppinaunta Allavega þá mundi ég eftir því að kunningi minn sem var á Álfhólum í stuttan tíma hann Júlli var einu sinni með og var hann og Gísli Geir í liði og auðvitað þegar snillingar koma saman þá verður sigur og ég er alveg 99%viss að þér hafi sigrað keppnina ´99.  Við stefnum líka á að sigra þetta og óskum við eftir stuðningi í Háskóabíó til að hvetja okkur til sigurs því þetta verður spennandi!!!
»
14.11.2007 10:38:02 / valdimar
Við Silja ákváðum að skella okkur á uppskeruhátíðina sem var haldinn um daginn, það var helvíti gaman og rosalega fannst mér Gísli Einarsson góður sem veislustjóri. Þessi gæi er bara snillingur og er bara fyndin. Það var auðvitað verið að heiðra fullt af liði þarna og þó ótrúlegt sé það var ég nokkuð sammála þeim sem voru að velja það fólk sem upp hefur staðið á þessu ári. Því allavega síðustu ár hefur þessi valsveit verið að gera alveg þvílíka gloríur að maður hefur oft dottið í hug að við séum ekki að fylgjast með sömu íþróttinni. En alla vega þá fannst mér Viðar Ingólfs eiga þetta 100% skilið og meira en það, og auðvitað Tótti svo hefði það ekki komið mér á óvart að Viðar hefði verið valin knapi ársins en Tóti var auðvitað mjög vel að þessu kominn. En því miður þá gátum við ekki leyft okkur að stoppa lengi við því jú maður er byrjaður í þessum frábærum prófum og ekki fer vel saman að vera þunnur og þreyttur að lesa undir próf. Þannig að Valdi Nörd tók við skinseminni og við tókum einn dans og ákváðum svo að fara heim á leið 
Enn allavega þá er þessi önn að vera búinn í skólanum og maður er búinn að læra alveg helling, það sem var mest spennandi var keppnin sem haldinn innan bekkjarins. skipt var í hópa 3 í hverjum hóp og áttum við að hanna felgulykil sem væri eins léttur og mögulegt væri en hann þyrfti að þola 50 kg á endanum. Þetta er verkefni sem plebbarnir í hátækniverkfræði eru búnir að vera að gera síðustu 2 ár og voða montnir að hafa náð lyklinum sem þeir reiknuðu og hönnuðu í 233 gr. Þannig að minn hópur setti sér markmið að hrauna yfir verkfræðingana og sína hvernig á að gera þetta. Útkomman var að minn hópur rúllaði þessu upp með lykil sem var næstum því 100gr léttari en áður hefur sést (enda búið að liggja yfir burðarþolsreikningunum í ansi langan tíma) og hann rétt stóðst álags prófið hér er vinnings liðið með lykilinn til vinstri Og hérna er dýrðin 133g sem getur haldið 50 kg Hér er lykillinn í álagsprófinu, hann seig aðeins en rétti sig svo í fyrri stöðu aftur og stóðst þar með áraunina.
»
07.09.2007 22:20:55 / valdimar

Jæja þá er búið að renna Artemis í gegnum kynbótadóm og ég er orðinn 1. verðlauna KLÁRHRYSSU ríkari með 9 fyrir tölt 9 fyrir vilja og geðslag. Ég er svo montinn að ég bara veit ekki hvað ég á að segja... en allavega þá er dómurinn hér. Síðsumarsýning á Gaddstaðaflötum Dagsetning móts: 27.08.2007 - Mótsnúmer: 13 Íslenskur dómur IS-2001.2.84-666 Artemis frá Álfhólum Sýnandi: John Kristinn Sigurjónsson
Mál (cm): 142 138 65 145 27,5 18,0
Hófa mál: V.fr. 8,6 V.a. 8,2
Aðaleinkunn: 8,00 Sköpulag: 7,94 Kostir: 8,04
Höfuð: 7,5 Vel opin augu Merarskál Slök eyrnastaða Löng eyru Háls/herðar/bógar: 8,5 Skásettir bógar Klipin kverk Bak og lend: 7,5 Breitt bak Djúp lend Stíft spjald Samræmi: 8,0 Fótagerð: 7,5 Lítil sinaskil Réttleiki: 7,5 Afturfætur: Nágengir Framfætur: Innskeifir Hófar: 8,0 Hvelfdur botn Prúðleiki: 8,0
Tölt: 9,0 Rúmt Há fótlyfta Skrefmikið Brokk: 7,5 Skrefmikið Há fótlyfta Ferðlítið Ójafnt Skeið: 5,0 Stökk: 8,5 Ferðmikið Hátt Vilji og geðslag: 9,0 Ásækni Þjálni Fegurð í reið: 8,5 Mikill fótaburður Fet: 7,0 Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 8,0 En ég veit ekki hvað það skiptir þó hún sé í fyrstu verðlaunum, ég var búinn að ákveða eftir að ég sá hana 3 vetra út í mýri að þessa meri myndi ég ALDREI selja og það stendur enn. Kannski að maður fái smá forgjöf þegar maður fer að keppa á henni.
»
29.07.2007 19:43:59 / valdimar
Shittt núna eru
bara fimm dagar þangað til við förum til Hollands á
heimsmeistaramót, ég held að það verði alveg geðveikt. Við förum
24 saman út og gistum í sumarhúsi skammt frá mótsvæðinu þannig
að þetta lítur alveg geðveikt út.
Það
er ekki mikið að gerast í hestamálunum eins og er, við seldum grána

sem barna hest
norður í land. Það er dálítið fyndið því þegar við tókum hann fyrst
4 vetra vara hann alveg rosalega fjarri manni og meira að segja
eitt skiptið þegar ég ætlaði að ná í hann út í gerði réðist hann á
mig og sló aftur og aftur með framlöppunum þangað til hann náði mér
og puttabraut mig!!!
Og ég er búinn að fá
folald!!! Undan Sóldögg hennar Söru frænku og Kraft frá Efri-þverá,
og vonaði ég að folaldið yrði jarpt og að það yrði meri og viti
menn ég fékk meri!!! Og það brúna!!! Veit ekki alveg hvernig hún
gat orðið brún því mamman er rauð og pabbinn er jarpur, en mér er
alveg sama. Enn betra að fá brúna meri...
Við fórum við með
eina meri undir hest núna í sumar, Silja fékk Mjölnisdóttirina
hennar Möggu systir sinnar lánaða og fór með hana undir Kýrholts
Þokka og lýst mér bara vel á það enda er merin mikill töltari og
Þokki mikill snillingur.
Artemis er algert
spurningarmerki,
ég veit ekki hvað er að gerast í hausnum á þeirri
meri. En hún klikkast alveg þegar hún fer i læti og tekur upp á
öllum skíta trixum til að koma knapanum af baki þegar hún veit af
graðhest
eitthver staðar í
nágreninu.
Ég er búinn að vera
nokkuð duglegur að fara austur á Álfhóla til að reyna að hjálpa
til, eina helgina tók ég myndavélina með mér og var ótrúlegar
duglegur að taka myndir af því sem var að gerast.
þetta er hrafns hreyður sem er í ærhúsunum helvíti
magnað

Ef
vel er skoðað þá sést dauð gæs hangani utan á hreyðrinu sem krummi
er búinn að gæða sér á!!!

Þegar ég kom á föstudegi áhváðum við Sigga að gera verk
plan.... ég myndi bera skít alla nóttina og hún myndi fara
að slá um morguninn.

Fluga og Pjakkur í góðum míling

Litlu kálfarnir að bíða eftir að
fá mjólkina sína.

Ég man ekki hvað það hafa verið
svona margir heimalingar, Fannar bróðir að tala við
þá.

Alltaf svangir.

Arven mín, hún er ekkert smá falleg og bera alveg af eins vetra
trippunum. Hún hefur reyndar ekki verið að sýna neinar svaka
hreyfingar en það kemur vonandi allt.

Á
fullu í heyskap, rúllaði fyrir Siggu 200 rúllum þessa
helgi bara gaman.
Heimilisfólkið á Álfhólum, Sigga (bóndi), Sara fræanka og og
finnska vinnukonan.

Þrælarnir hennar Söru: Daníel,
Sara Rut og finnska stelpan (man ekki hvað hún heitir), svo er
Videk í bakrunni fyrir aftan rúlluvagnin
Já það er alltaf gaman að fara
á Álfhóla, alltaf nóg að gerast þar. Það er líka svo gott að koma
þangað og þarna ólst ég upp og finnst ég eiga heima
þarna
»
18.07.2007 19:18:05 / valdimar
Allt í vinnslu!!!!
»
17.06.2007 22:16:28 / valdimar
Vá
hvað það er langt síðan maður nennti að skrifa blog, einn og
hálfur mánuður!!! Það hefur líka ýmislegt gerst, ég keppti á
Reykjavíkur meistaramótinu á Artemis og var þriðji í fjórgang
með c.a 6,1 og svo kepptum við í Andvara og urðum í 4 sæti
þar með aðeins hærri einkum. en hveitibrauðsdagarnir
voru ekki mikið fleiri... eftir það vorum við ekki alveg
sammála hvort ég ætti að vera á baki eða liggja á jörðinni!!!
þannig að nú hefur mágur minn hann John fengið það verðuga
verkefni að koma henni Artemis minni í skilning um það að það
sé best að knapinn sé á baki en liggi ekki hálf rotaður á
jörðinni. En allavega þá er ætlunin að sýna hana í kynbótadóm
í haust þannig að maður bíður spenntur. Það er líka hátt
markmið sem maður setur sér, auðviðað að vera með betri dóm
en Mósa hennar Hrefnu systir sem var að fá helvíti góðan
dóm.
Það hefur verið heldur erfitt að halda Arven litlu (svart skjóna) á
réttum stað, það er að segja á Álfhóla mýrinni, já hún hefur séð
einhvern svaka sjarmor á mýrinni á næsta bæ, já það hefur verið
enginn smá foli því hún er búin að fara þangað tvisvar og þurftir
að fara yfir tvær girðingar og synda yfir skurð, alger lauslætis
drós!!!
En maður er byrjaður í Framtak aftur og verð þar í sumar allavega
þangað til maður fer til Hollands.... (hlakka ekkert smá til, tvær
vikur í sumarhúsi og geðveikt) en allavega þá er ég búinn að fá
stöðuhækkun og orðinn verkstjóri í smiðjunni og
auðvitað fékk maður feita launahækkun sem er bara gott, og er með
yfirumsjón með 100.000.000 kr verki þannig að maður er orðinn
aðeins trekktari og stressaðri (sem ég mátti ekki við} og er
farinn að vakna á nóttunni með áhyggjur að eitthvað sé að, en maður
fær víst borgað fyrir að vera með magasár.
Allavega
þangað til næst... Valdi kaldi.
»
01.05.2007 22:40:30 / valdimar
Jæja þá er ég búinn að fá út úr öllum
prófunum nema einu, stærðfræði, sem ég veit að ég næ. En það
sem er ótrúlegt er að ég náði öllum prófunum, það sem er
svona ótrúlegt er að ég hef ekki verið rosalega duglegur að
læra miðað við fyrri annir því hestarnir hafa auðvitað togað
alveg rosalega í mann.
Úr hesthúsinu er allt rosalega gott að frétta
Blesi (Glampasonurinn) er að kicka alveg rosalega stert inn núna
eftir að hafa dottið í smá lægt fram eftir vetri en er allur að
koma til styrkjast og orðinn svaka vígalegur og er að batna með
hverjum deginum. Þvílíkt gæðablóð sem þessi hestur er það er bara
ótrúlegt og hve samvinnuþýður váááá....
Og viti menn Artemis mín verður með Ofur riderinn
hana Söru Rut á Stórsýningu hestamann um helgina hún verður í
rosa flottu atriði og það verður helvíti gaman að sjá
þetta.
»
Síður: 1 2 3 4
|
|